Alþjóðlega bandýsambandið (IFF) hefur dregið í riðla fyrir undankeppni HM karla í bandý, 32 lið keppa um þátttökurétt fyrir HM sem haldin verður í Lettlandi í december 2016.
Ísland lenti í A riðli en þar á meðal eru Svíar sem eru ríkjandi heimsmeistarar. Í riðlinum eru auk þess Slóvakía, Rússland, Frakkland og Belgía. Þetta verður í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í undankeppni HM karla í bandý.
Leikir A-riðils fara fram 3-7 febrúar í Nitra í Slóvakíu.